Stafræn gróska

Menntastefna Reykjavíkur leggur áherslu á að taka framtíðinni opnum örmum og nýta stafræna tækni til að auðga menntun og veita börnum fjölbreytt tækifæri til sköpunar og tjáningar.

Stafræn gróska er stuðningsvefur fyrir innleiðingu á framsækinni og skapandi tækni í skóla- og frístundastarfi borgarinnar. Hér finnur þú meðal annars upplýsingar um námstæki, hugbúnað, persónuvernd og leiðbeiningar fyrir starfsfólk, nemendur og foreldra til að styðja við verkefnið.

""

Starfsfólk

Eitt skref í einu. 

""

Nemendur

Vinnum saman.

""

Foreldrar

og forsjáraðilar.

""

Starfsþróun

Fræðsla í Mixtúru.

1:1 innleiðing á námstækjum

Stafræn gróska er umfangsmikið verkefni sem stendur yfir skólaárin 2021-2023 og snýr að hraðari innleiðingu stafrænnar tækni með uppbyggingu tæknilegra innviða og þjónustu, starfsþróun og ráðgjöf, eflingu stafrænnar hæfni og markvissri, ábyrgri og framsækinni notkun tækni í skóla- og frístundastarfi í borginni.

Stafræn gróska

  • byggir ofan á mikilvægt starf og skólaþróun síðustu ára og missera. 
  • stuðlar að framþróun náms, starfs- og kennsluhátta.
  • tengist stafrænni umbreytingu í Græna planinu og menntastefnu Reykjavíkurborgar.
  • leggur megin áherslu á fagmennsku og samstarf um barnið sem virkan þátttakanda.
  • styður jöfn tækifæri og valdeflingu nemenda í gegnum tækni og sköpun.
  • er tækifæri til að láta drauma sína rætast.

Stafræn gróska

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur

Þú getur haft samband með tölvupósti: groskan@reykjavik.is